Klúbbar
Dansklúbbur IOGT
er verkefni IOGT sem ætlað er til að skapa aðstæður fyrir fólk að dansa og skemmta sér í vímulausu umhverfi. Verkefnið er í samstarfi við Komið og dansið, samtök áhugafólks um almenna dansþátttöku. Stefnt er að því að vera með að minsta kosti fjögur böll á ári. Tónlistin verður leikin af geisladiskum eða lifandi og verður gott tækifæri til að spretta úr spori, svitna og hitna í takt við dansmúsikkina.
3. febrúar Gömludansakvöld IOGT í Danshöllinni
16. mars Gömludansakvöld IOGT í Danshöllinni
Núll % unga fólkið
er hópur ungs fólks 14 - 30 ára sem hittist í vímulausu umhverfi og gerir eitthvað skemmtilegt saman.
nánari upplýsingar á: www.nullprosent.is
http://www.facebook.com/pages/Reykjavik-Iceland/Null-prosent/127464247271578?ref=ts
Sterk og viðbúin
er verkefni sem foreldrar og unglingar geta notað saman til að seinka byrjunaraldri á áfengisneyslu.
nánari upplýsingar á http://iogt.is/id/3594
Fjölskylduklúbbar
eru starfræktir eftir erlendri fyrirmynd, s.k. Houdolin módeli sem hefur skilað góðum árangri í öðrum löndum í Evrópu.
Skógræktarklúbbur
IOGT hefur lengi komið að skógrækt í gegnum árin, en mest áberandi er Galtalækjarskógur í Landsveit. Frá árinu 1967 hefur verið stunduð skógrækt og hefur skógurinn stækkað svo um munar.
Í dag er hópur félaga í klúbbnum sem koma saman til að leggja einhverjum lið með skógrækt og fegrun umhverfisins.

