Samræður

Samræður eru samskiptaform sem á undir högg að sækja. Það er að öllu leyti dapurlegt en einkum þó þegar kemur að samskiptum barna og fullorðinna. Til að skapa vellíðan, ánægju og gagnkvæma virðingu er nauðsynlegt að hafa þekkingu á forgangsröðun og því sem aðrir kjósa sér til að líða vel. Hvernig getum við komist að því hvað unga fólkið vill án þess að ræða reglulega við það á góðum nótum?
Áríðandi er að skapa afslappað umhverfi þar sem allir aðilar geta tjáð sig frjálslega.
Unga fólkið vill fjalla um efni og þarfir af öllu tagi en best er að fullorðna fólkið búi sig undir að þurfa að ræða um vímuefni heima fyrir. Þá kemur sér vel að hafa komið á góðum og jákvæðum samræðuhefðum í fjölskyldunni.
Það er svo líka í sjálfu sér markmið að koma á góðum hefðum um traustar samræður barna og fullorðinna, hvort sem um er að ræða erfitt val eða hversdagslegt.
Í samræðunum er eðlilegt að finna flöt á grundvelli samningsins og hvað hann á á innihalda.
Samræðuform eru misjafnleg og mörg t.d. ísbíltúr í næsta sveitafélag, göngutúr, teboð, kósíkvöld osfr...
Tillögur að samræðum finnast hér.
Þér er einnig velkomið að leita ráða hjá okkur símleiðis! 511 1021

