marita_logo

 

 

oafengt_is.jpg

 

 

IOGT á Íslandi er hluti af alþjóðlegri hreyfingu sem hefur sinnt forvörnum frá 1884.

Markmið IOGT

Bindindissamtökin IOGT á Íslandi eru hluti alþjóðasamtakanna IOGT International. IOGT-I eru sjálfstæð félagasamtök fólks, opin öllum án tillits til aldurs, kyns, kynþáttar, þjóðernis, félagslegrar stöðu, trúar eða stjórnmálaskoðana. Markmið IOGT er að fólk um allan heim njóti frelsis og tilgangsríks lífs. 

IOGT-I eru fjölmennustu félagasamtökin í heiminum sem starfa að áfengis-og vímuefnamálum og hafa að markmiði að efla vímulausan lífsstíl.

 

Bindindissamtökin IOGT á Íslandi vilja…

vinna fylgi lífsháttum án vímuefna 

styðja hverja þá löggjöf sem miðar að því að takmarka neyslu áfengis og annarra vímuefna og minnka þannig skaðann sem fylgir henni 

efla gagnkvæma virðingu fólks án tillits til kynþátta, kyns, trúar- og stjórnmálaskoðana  

leggja sitt af mörkum ásamt IOGT í öðrum löndum til að draga úr efnahags-og félagslegu misrétti 

taka þátt í friðarstarfi innanlands og styrkja slíkt starf á alþjóðavísu ásamt félögum IOGT í öðrum löndum 

taka þátt í baráttu fyrir verndun umhverfisins 

leggja lið raunhæfum aðgerðum og félagslegri þjónustu til að tryggja mannsæmandi líf fyrir fórnarlömb áfengis og annarra vímuefna og fjölskyldur þeirra